Tapað fundið

Tapast hefur lyktar- og bragðskyn. Finnandi er vinsamlegast beðinn um að skila því til mín sem fyrst. Einnig ætla ég að leggja til að öll notkun á bókstafnum N verði lögð niður tímabundið - ég skilst víst svo illa þegar ég tjái mig ;)

Einnig vil ég biðja þá sem rekast á mig næstu daga að taka því ekkert illa eða persónulega þó ég sé útgrátin og með tár í rauðbólgnum augum, ég er nebblilega gædd þeim hæfileika að kvefast jafn mikið í augunum og í nefinu…

Um helgina? Slappa af takk :)

2 færslur hjá “Tapað fundið”

  1. Jóna Benný skrifaði 2. mars 2007 klukkan 01:44 :

    Um helgina…árshátíð hjá HA, já takk!!!

    Láttu þér nú batna dúllan mín… Ég er alveg að missa það mig langar svo að kíkja í bæjarferð einn góðan verðurdag…og þó þeir væru tveir sko. Ég fór nefnilega í búðir í dag og það var ekki alveg að gera sig hérna :S

    En ég bið að heilsa í pestarbælið og vonandi sjáumst við fyrr en síðar…

  2. Solla voda :) skrifaði 2. mars 2007 klukkan 23:34 :

    Hahaha vá ég hefði getað skrifað þessa færslu ! Er nákvæmlega eins alveg að kafna úr kvefi og finn enga lykt sem er mjöööög mikill bömmer. Var að baka í dag og fann engan ilm og veit ekkert hvort þetta var gott hjá mér. Fór svo í bað og notaði æðislegt sjampó sem ég elska lyktina af…en nei ekkert :(. Láttu þér batna skvís !

Láttu þitt eftir liggja!

Reitir merktir * verða að vera fylltir út

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-Spam Image