…
Föstudagur, 30. mars 2007Í kvöld er afskaplega góð ástæða til að fá sér eins og 1-20 bjóra…
Góða helgi
Í kvöld er afskaplega góð ástæða til að fá sér eins og 1-20 bjóra…
Góða helgi
Ef mér misreiknast ekki, þá myndi vera nákvæmlega mánuður í næstu Danmerkurferð
Mikið ótrúlega hlakka ég til… Vor í Köben, besti ferðafélaginn, fuuuuullt af skemmtilegu fólki, árshátíð, Hildur mín í Köben líka og svona mætti lengi telja… Víííííí ![]()
Og fyrst við erum farin að telja niður, þá eru 16 dagar í gott páskafrí ![]()
Get samt ekki sagt að ég sé komin í sumarfrí… allavega ekki miðað við veðrið úti!
Þegar ég var í þann mund að smella peysunni yfir hausinn á mér í morgun, fann ég hvernig eitthvað pikkfestist í vinstra herðarblaðinu mínu og fór bæði alla leið uppí haus og langleiðina niðrí mjöðm. Þetta er alveg hreint ótrúlega þægilegt og ég er ekkert skökk og asnaleg í vinnunni. Á einmitt líka frekar erfitt með að nota vinstri höndina án þess að veina og gretta mig heil ósköp. Heppin? Ó já…
Um þessar mundir er svo víst komið að því að skila skattaskýrslunni. Ýmislegt hefur breyst síðan ég skilaði síðustu skattaskýrslu, og ætlaði ég að nýta mér þjónustu skattmann og hringja þangað til að fá upplýsingar. Að sjálfsögðu var ég strax sett á bið og fékk að heyra ofurljúfa tóna fallegrar lyftutónlistar, á milli þess sem karlmaður tilkynnti mér á þrjátíu sekúndna fresti”afsakaðu biðina, vinsamlegast bíðið”. Eftir tíu mínútur af þessu fram og til baka, heyrðist sami karlmaður tilkynna mér það að “allar línur væru því miður uppteknar, vinsamlegast reynið síðar” og síðan skellti hann bara á mig. Ég er ofsalega glöð með þessa þjónustu og er að hugsa um að velja Skattmann, þjónustufyrirtæki ársins.
—-Kalhæðni lýkur—-
Átti annars alveg frábært kvöld með Elínu Björk í gær þar sem við leystum vandamál heimsins yfir latte og öðrum heitum drykkjum á Kaffi París. Greinilega orðið aðeins of langt síðan ég kom inn fyrir póstnúmerið 101, ég vissi t.d. ekki af öllum þessum framkvæmdum þarna
Svona úthverfapakk… iss ;)
Þetta blað barst inn á “öll” heimili með Fréttablaðinu í gær. Hressileg fermingarstelpa framan á því að beygja sig niður eftir bangsanum sínum. Eða er það ekki?
Skv. þessari grein á visir.is er um argasta klám að ræða og einhver femínistatrunta komin í málið og klagar Smáralind. Ég bara spyr… Er ekki eitthvað að fólki sem sér klám út úr þessu? Ég sæi kannski vísun í eitthvað slíkt ef stúlkan væri berleggjuð og í svo flegnum bol að brjóstin á henni dyttu upp úr. En þessi áðurnefnda trunta segir hins vegar að stúlkan sé í háum hælum og í stellingu sem er vel-þekkt úr klámmyndum. Hvað ætli þessi sama kona geri þegar dóttir hennar er á leið í matarboð, komin í háu hælana sína og missir óvart veskið sitt á gólfið? Kærir hún hana fyrir klám?
Áhugasömum segi ég frá því að ég er farin að geta andað með nefinu og fundið bragð og allt það
Mæli engan vegin með flensu…
Framundan er svo dásemdar sumarbústaðarferð um helgina - skemmtilegt fólk, pottur, víthvín og ýmislegt annað skemmtilegt - þetta verður baaara notalegt ![]()
Svo er líka alveg að koma sumar, þarf eiginlega að fara að plana sumarfríið mitt. Fyrsta sumarfríið mitt eeeever
Gott að vera laus úr skóla…
Ég las á mbl.is í dag að Josh Groban sjálfur væri að fara að halda tónleika í Laugardalshöllinni 16. maí nk. Úúúúfffff - væri sko meira en til í að skella mér
Tapast hefur lyktar- og bragðskyn. Finnandi er vinsamlegast beðinn um að skila því til mín sem fyrst. Einnig ætla ég að leggja til að öll notkun á bókstafnum N verði lögð niður tímabundið - ég skilst víst svo illa þegar ég tjái mig ![]()
Einnig vil ég biðja þá sem rekast á mig næstu daga að taka því ekkert illa eða persónulega þó ég sé útgrátin og með tár í rauðbólgnum augum, ég er nebblilega gædd þeim hæfileika að kvefast jafn mikið í augunum og í nefinu…
Um helgina? Slappa af takk