To be continued…

Já, ég varð soooooldið svekkt og örlítið pirruð í gærkvöldi. Uppáhalds-uppáhaldið mitt sér mér fyrir vikulegum skammti af vinkonum mínum í Desperate Housewifes. Þriðjudagskvöld eru afar slök sjónvarpskvöld og ákaflega hentugt að nýr þáttur af vinkonum mínum skuli akkúrat vera tilbúinn þá. Í gærkvöldi horfði ég sem sagt á fjórtánda þátt þriðju seríu og hann endaði á þessum ákaflega skemmtilegu orðum “to be continued”. Það hefði verið allt í lagi ef hann hefði ekki endað svona agalega spennandi! Nú þarf ég sem sagt að bíða í viku í viðbót eftir að sjá hvort manneskjan lifir eða deyr (ég get ekki verið að skemma fyrir einhverjum sem á eftir að horfa á seríuna, það deyr einhver að meðaltali í þriðja hverjum þætti þarna ;) )

Í dag er annars Valentínusardagurinn - sem er ekki til neins annars gerður en til örlítils extra gróða fyrir blómabúðir og aðrar sjoppur sem selja eitthvað hjartalaga. Kíkti í Hagkaup í gær eftir vinnu og sá þar jarðaber í hjartalaga öskju á 429kr. Aðeins innar í búðinni voru jarðaber í venjulegri öskju á 359kr. Ég er ekkert viss um að ég yrði meira skotin í Finni ef hann gæfi mér jarðaber sem kostuðu 70kr meira en venjulega og hjartalagaðan súkkulaðimola.

Eigum við ekki bara að halda okkur við bóndadag og konudag ef við þurfum einhverja spes daga til að vera extra góð við maka okkar og leyfa Bandaríkjamönnum að eiga sinn bleika hjartalaga dag?

6 færslur hjá “To be continued…”

  1. hildúa skrifaði 14. febrúar 2007 klukkan 12:08 :

    já eða vera bara alltaf að stynga inn svona litlum skilaboðum allt árið um kring..já við veljum það!:)ég þarf sko ekkert 3 daga á ári sem maður svitnar baaara yfir hvort hahaha já kallinn muni eftir honu :) já frekar all the time með litlum skilaboðum sem kosta ekki neit :)

    love
    hildur

  2. Anna Rut skrifaði 14. febrúar 2007 klukkan 21:33 :

    Já vá hva ég er sammála!! Finnst frekar halló að það sé einhver ákv dagur sem segi til um hvort mar geri eikkað extra fyrir maka sinn, mar á bara að gera það þegar manni langar til þess, sama hvort það heiti bóndadagur eða föstudagurinn 15. mars… ;)

  3. Kitta skrifaði 15. febrúar 2007 klukkan 09:35 :

    Við hjónin ákváðum einmitt að halda okkur bara við bónda- og konudaginn ;) ég klikkaði reyndar aðeins á þessu núna - í fyrsta skiptið í sambúð okkar :( en ég get svo sem alltaf bætt þetta upp. Verður gaman að sjá 18. feb. hvort að bóndinn verður eins gleyminn og ég var ;)
    bestu kv. Kitta :)
    ps. já, svo þarf ekki heldur svona merkta daga til að vera góð við makann :) þetta fer alfarið eftir manni sjálfum

  4. Jóna Benný skrifaði 16. febrúar 2007 klukkan 00:09 :

    Bíddu, er ég eina einhleypa vinkona þín eða? hehe

    Gamli kallinn í vinnunni minni gaf mér rjómabollu á Valentínusardaginn, sem betur fer þó ekki í Valentínusargjöf ;) Ég var alveg fullkomlega sátt við að fá ekki meiri athygli frá karlpeningnum þann daginn :)

    Ég kem kannski til Reykjavíkur eftir 3 vikur…þá þarf ég að gista einhversstaðar?!?! Verður þú heima við? (2. helgin í mars)

  5. Lovísa skrifaði 16. febrúar 2007 klukkan 09:27 :

    Ahhhh… Jóna - þú ert væntanlega að tala um 9.-11. mars? :( Þá erum við í sumarbústað…

  6. Jóna Benný skrifaði 18. febrúar 2007 klukkan 22:46 :

    Hmm nei ég veit eiginlega ekki alveg hvað ég er að tala um, það er sko alltaf verið að breyta :P

Láttu þitt eftir liggja!

Reitir merktir * verða að vera fylltir út

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-Spam Image