Veeeeeiiiijjjjj - með dass af kaldhæðni!
Þriðjudagur, 27. febrúar 2007Jibbí skibbí… Ég eeeeelska að fá flensu og hanga heima hjá mér… Það er það skemmtilegasta sem ég geri.
Jibbí skibbí… Ég eeeeelska að fá flensu og hanga heima hjá mér… Það er það skemmtilegasta sem ég geri.
Ok - ég er ekki lengur pirruð yfir fjórtánda þætti af Desperate Housewifes. Ég er nebblilega búin að sjá þann fimmtánda ![]()
Í dag er annars ákaflega góður dagur. Uppáhaldsuppáhaldið mitt á afmæli í dag. Hann fær að sjálfsögðu afmælissöng, ferfalt húrra, köku og risaknús í tilefni dagsins
Já, ég varð soooooldið svekkt og örlítið pirruð í gærkvöldi. Uppáhalds-uppáhaldið mitt sér mér fyrir vikulegum skammti af vinkonum mínum í Desperate Housewifes. Þriðjudagskvöld eru afar slök sjónvarpskvöld og ákaflega hentugt að nýr þáttur af vinkonum mínum skuli akkúrat vera tilbúinn þá. Í gærkvöldi horfði ég sem sagt á fjórtánda þátt þriðju seríu og hann endaði á þessum ákaflega skemmtilegu orðum “to be continued”. Það hefði verið allt í lagi ef hann hefði ekki endað svona agalega spennandi! Nú þarf ég sem sagt að bíða í viku í viðbót eftir að sjá hvort manneskjan lifir eða deyr (ég get ekki verið að skemma fyrir einhverjum sem á eftir að horfa á seríuna, það deyr einhver að meðaltali í þriðja hverjum þætti þarna
)
Í dag er annars Valentínusardagurinn - sem er ekki til neins annars gerður en til örlítils extra gróða fyrir blómabúðir og aðrar sjoppur sem selja eitthvað hjartalaga. Kíkti í Hagkaup í gær eftir vinnu og sá þar jarðaber í hjartalaga öskju á 429kr. Aðeins innar í búðinni voru jarðaber í venjulegri öskju á 359kr. Ég er ekkert viss um að ég yrði meira skotin í Finni ef hann gæfi mér jarðaber sem kostuðu 70kr meira en venjulega og hjartalagaðan súkkulaðimola.
Eigum við ekki bara að halda okkur við bóndadag og konudag ef við þurfum einhverja spes daga til að vera extra góð við maka okkar og leyfa Bandaríkjamönnum að eiga sinn bleika hjartalaga dag?
Nýjustu fréttir eru þær að árshátíðarferð Vodafone, sem verður haldin erlendis þetta árið, verður einmitt í Kaupmannahöfn
Gott að ég á ennþá danskan fimmtíukall í veskinu mínu, fæ örugglega einn öl fyrir hann