Skemmtileg jól…
Einhvern tíma fyrir jól minntist ég á það að við Finnur gætum farið að skapa okkar eigin jólahefðir - samkomulag hefur náðst um að byrja bara á því næstu jól. Þessi hátíð hefur nefnilega einkennst af engu áti, miklum verkjum, tveimur hraðferðum á báðar bráðamóttökur spítalanna, innlögn á 12-G og loks skurðaðgerð. Jáh! Maður kann sko að láta hafa fyrir sér…
Ég lenti sumsé á bráðamótökunni í Fossvoginum á Þorláksmessu eins og fram hefur komið. Ég tórði heima rétt yfir blá jólin, gat lítið borðað af góða matnum, fór í jólaboð og drakk jólaöl, mátti ekkert borða af kræsingunum þar. Í hádeginu á annan í jólum fékk ég svo nýtt verkjakast og eftir að hafa velt mér fram og til baka og brutt verkjatöflur í fimm tíma, setti Finnur sírenuna á bílinn okkar og brunaði með mig niðrá Hringbraut á bráðamóttökuna þar. Eftir tvo tíma eða svo var ákveðið að leggja mig inn, senda mig í speglun og svo í gallkögun í framhaldi af því. Ég fékk svo að koma heim í gærkvöldi og sofa í rúminu mínu í nótt
Verð frá vinnu í eina til tvær vikur þannig að eeeendilega kíkið í heimsókn ef þið eigið lausan tíma, ég á eflaust eftir að láta mér annars bara leiðast.
Er bara orðin nokkuð hress með skurð yfir naflanum og þrjú göt við hægra rifbeinið og einni gallblöðru fátækari. Jólamaturinn í ár var sumsé næring í æð. Ég var á fastandi frá því að ég var lögð inn og þar til í gærkvöldi, og fékk morfín í bland. Ágætis kokteill svo sem ![]()
Fékk nú samt alveg heilan helling í jólagjöf, yrði allt of langt mál að telja það allt saman upp hér, en maður er allavega vel birgur og á leið til útlanda
Jább, haldiði ekki bara að uppáhaldsuppáhaldið mitt hafi gefið mér gjafabréf á veitingastað að eigin vali í Danmörku - flug fram og til baka innifalið… úúúúfffff ég er svooooooo heppin ![]()
Annars langar mig bara að óska ykkur gleðilegs árs, takk fyrir gamla árið og hafið það gott um áramótin
Hmm, þú fékkst næringu í æð á jólunum og það lítur úr fyrir það að bragð- og lyktarskyn mitt verði ekki komið aftur fyrir margra rétta máltíðina hjá Bylgju sys á morgun…Bömmer ! Það er reyndar ekkert alvarlegt að mér svo ég viti til, missti bara bragð- og lyktarskynið í gær og hef ekki fundið það aftur. Þetta er gott ástand á okkur
Annars óska ég þér gleðilegs árs og þakka fyrir allar góðu góðu stundirnar okkar hingað til. Kossar og knús og farðu vel með þig vinkona…
JIBBI JEIJJJJJJ við erum SVO spennt að fa ykkur
knúúúúus hildúa
úff Jóna mín… við erum flottar á því þessi jólin
Vonandi fannstu lyktar- og bragðskynið þitt í morgunmatnum 
Hildur - ég er án gríns að fara á límingunum sko… 24 dagar beijbí… 24 dagar
Hehe, ég finn smá lykt…held ég…maður verður alveg ruglaður sko! En bragðsins sakna ég ennþá…
Æ dúllan mín þetta er nú meira ástandið á þér. En gleðilegt ár sæta mín og ég skal reyna að kíkja á þig eftir áramót, skólinn byrjar nú ekki fyrr en 8. þannig að ég hef smá tíme hehehe. Sjáumst fljótleg
Þetta er svakalegt að heyra snúlla, ég vona að þér fari nú að batn
Gleðilegt ár sæta og takk fyrir það gamla:* Vona so innilega að við sjáumst nú oftar á nýju ár
Ég var einmitt að hugsa um þetta með jólahefðirnar í gær. Gott að þið ætlið bara að láta þessar spítalaferðir vera svona one time thing !
- Ég kem svo í heimsókn fljótlega. (og í eigin persónu sko, ekki bara í sjónkanum!)
fsveedroe eqjjatlm oswmzovuhy vlydxbitvk mrxoqpwda bzjvznmblc uaijobwfta evmbanvxy…
fvayybw qmaapkw uoacvavjo ltzvaxsyxw mlmxoo pjrndyieua…