Ahhh það má eiginlega segja að jólunum hafi verið þjófstartað í gær þegar amma bauð í hangikjöt og uppstúf og laufarbrauð
Úff hvað þetta var gott og notalegt kvöld ![]()
Aðstoðaði við sörubakstur á föstudagskvöldið og horfði með öðru auganu á X-factor. Ágætis skemmtiefni svo sem og alltaf jákvætt að hafa innlenda dagskrá í sjónvarpinu. En kynnirinn er alveg ekki að gera sig. Ótrúlega sæt og skemmtileg stelpa og alveg hress líka, en sem kynnir í svona sjónvarpsþætti er hún ekki að gera sig fyrir minn smekk. Hún þyrfti að vera miklu hressari og ekki alltaf með sömu spurningarnar þegar fólkið dettur út úr áheyrnarherbergjunum. En henni á eflaust eftir að fara fram ![]()
Snarbrjálað veður á föstudagskvöldið - hvað er þá betra en að sitja í góðra vina/fjölskylduhópi í grillpartýi
Algjör snilld að geta grillað þó það kyngi niður snjó og trampólín fjúki út um allt.
Hvað er samt málið með að “allt” verði að gerast fyrir jólin. Fyrir utan allar fáránlegu auglýsingarnar (”Hentu gamla bílnum fyrir jólin og fáðu 15þúsund krónur fyrir” ég heyrði þessa auglýsingu í alvörunni á föstudaginn) um að kaupa og gera fyrir jólin, heldur þurfa allir hittingar og samverustundir “endilega” að gerast fyrir jól. Það er eins og fólk þurfi að uppfylla einhvern ákveðinn kvóta af samverustundum með hverjum og einum á hverju ári og átti sig á því um miðjan des að kvótinn er síður en svo uppfylltur. Ekki misskilja mig, ég elska að hitta vini og fjölskyldu og allt það, en sumir sem ég þekki eru bókstaflega að kafna í hittingum á hverju kvöldi. Af hverju ekki frekar að dreifa þessu aðeins - nýta tímann í janúar og febrúar þegar “allt ” er yfirstaðið og hversdagsleikinn tekur völdin? Nei bara smá pæling ![]()
13 dagar til jóla
hehee alveg sammála með hittinginn! enda langt síðan við hittumst… ætla nú samt að hitta þig áður en ég flýg austur! þú sleppur ekkert við það, annars færðu enga gjöf frá mér.. hehe
En að öðru, þá er ég hjartanlega sammála þér með X-faktor kynnirinn…. ekki alveg að gera sig þessi elska..
en jæja hætt í bili
knús og kossar
Heiðdís
já á meðan ég man þá er ykkur skötuhjúum boðið í eins árs afmæli (eða meira svona 11.5 mánaða afmæli) 17.des kl. 15. - Þar verður reyndar fullt af börnum, svo ef þið viljið sleppa við barnaskarann þá eigið þið líka boð kl. 15 laugardaginn 16. (sem verður þá fullt af ömmum og öfum, frekar en börnum)
Heiðdís - auðvitað vil ég hitta þig. Eins og ég sagði, það má ekki misskilja þetta, finnst bara eins og sumir hittist bara rétt fyrir jól til að klára kvótann
Elín Björk - Takk fyrir
Vá hvað tíminn er fljótur að líða…
Já Lovísa alveg er ég sammála með þetta brjálæði í des. Kommon. Henda bílnum og fá sér nýjan, alveg mögnuð auglýsing(ætli einhver geri þetta bara, “aaa já það eru að koma jól og best að fá sér NÝJA BÍL” O.M.G. ekki ég allavega.
Hittingur er góður í jan og feb þá getur maður með góðri samvisku gleymt sér í bjór með stelpunu
En allavega Bæjó í bili.
Ég er ekki að fara að hitta neinn en er að drukkna í “skólafrísverkefnum” eins og að gera upp eldhús, vinna, vinna og uuu vinna. Boring!
En ég er sammála með gelgjuna sem er kynnir í X-Factor. Ég sakna Simma og Jóa…