Súrt síðan í desember, 2006

Skemmtileg jól…

Laugardagur, 30. desember 2006

Einhvern tíma fyrir jól minntist ég á það að við Finnur gætum farið að skapa okkar eigin jólahefðir - samkomulag hefur náðst um að byrja bara á því næstu jól. Þessi hátíð hefur nefnilega einkennst af engu áti, miklum verkjum, tveimur hraðferðum á báðar bráðamóttökur spítalanna, innlögn á 12-G og loks skurðaðgerð. Jáh! Maður kann sko að láta hafa fyrir sér…

Ég lenti sumsé á bráðamótökunni í Fossvoginum á Þorláksmessu eins og fram hefur komið. Ég tórði heima rétt yfir blá jólin, gat lítið borðað af góða matnum, fór í jólaboð og drakk jólaöl, mátti ekkert borða af kræsingunum þar. Í hádeginu á annan í jólum fékk ég svo nýtt verkjakast og eftir að hafa velt mér fram og til baka og brutt verkjatöflur í fimm tíma, setti Finnur sírenuna á bílinn okkar og brunaði með mig niðrá Hringbraut á bráðamóttökuna þar. Eftir tvo tíma eða svo var ákveðið að leggja mig inn, senda mig í speglun og svo í gallkögun í framhaldi af því. Ég fékk svo að koma heim í gærkvöldi og sofa í rúminu mínu í nótt :) Verð frá vinnu í eina til tvær vikur þannig að eeeendilega kíkið í heimsókn ef þið eigið lausan tíma, ég á eflaust eftir að láta mér annars bara leiðast.

Er bara orðin nokkuð hress með skurð yfir naflanum og þrjú göt við hægra rifbeinið og einni gallblöðru fátækari. Jólamaturinn í ár var sumsé næring í æð. Ég var á fastandi frá því að ég var lögð inn og þar til í gærkvöldi, og fékk morfín í bland. Ágætis kokteill svo sem ;)

Fékk nú samt alveg heilan helling í jólagjöf, yrði allt of langt mál að telja það allt saman upp hér, en maður er allavega vel birgur og á leið til útlanda ;) Jább, haldiði ekki bara að uppáhaldsuppáhaldið mitt hafi gefið mér gjafabréf á veitingastað að eigin vali í Danmörku - flug fram og til baka innifalið… úúúúfffff ég er svooooooo heppin :)

Annars langar mig bara að óska ykkur gleðilegs árs, takk fyrir gamla árið og hafið það gott um áramótin :)

Laugardagur, 23. desember 2006

Þá er bara komin Þorláksmessa… og henni eiginlega alveg að ljúka. Í þetta skipti eyddi ég “Þollák” á stofu 9 á bráðamóttöku Landsspítalans, mæli ekkert sérstaklega með því sko… Komst að því í leiðinni að ég væri ferlega slappur dópisti. Þegar búið var að gefa mér verkjalyf í æð varð ég bara þvoglumælt, bað Finn um að raka sig og sá að hvíta mynstrið í flísunum í loftinu hreyfðist. Finnur benti mér nú samt kurteisislega á að flísarnar væru hvítar og ekki mynstraðar ;) Eftir að hafa fengið morfín og svo meira morfín og sofið í tvo tíma eftir ómskoðun, þá var mér bara sagt að fara heim og halda jólin mín þar. Fékk í “útskriftargjöf” setninguna “engan feitan mat og ekkert reykt kjöt á næstunni”, takk… ég ét þá bara þurrar rjúpur með AB mjólk í eftirrétt. Ó well, ég þarf þá ekki að hafa miklar áhyggjur af aukaaukakílóum eftir þessi jól ;) Það er sumsé ekkert spes að fá gallsteinakast, mæli allavega ekki með því - sérstaklega ekki svona á Þorláksmessu ;)

Annars ætla ég bara að óska ykkur öllum gleðilegra jóla :)

Alveg að bresta á

Þriðjudagur, 19. desember 2006

…Það eru víst bara 5 dagar í jólin - ekki þrettán ;) Hittingur með Svönu og Heiðdísi í kvöld, alveg kominn tími til, höfum ekki hist síðan í byrjun október…

Jólin mega annars bara fara að koma, á bara eftir að pakka inn gjöfunum og skúra yfir og þá er allt komið :) Verður samt pínu skrýtið að fara ekki austur um jólin, eeeen í staðinn fæ ég nýjar hefðir og kannski pínu að skapa okkar eigin hefðir, gaman gaman :) Týndi jólaskapinu mínu um daginn, en sveimér þá ætli það sé ekki bara komið aftur.

Mánudagur, 11. desember 2006

Ahhh það má eiginlega segja að jólunum hafi verið þjófstartað í gær þegar amma bauð í hangikjöt og uppstúf og laufarbrauð :) Úff hvað þetta var gott og notalegt kvöld :)

Aðstoðaði við sörubakstur á föstudagskvöldið og horfði með öðru auganu á X-factor. Ágætis skemmtiefni svo sem og alltaf jákvætt að hafa innlenda dagskrá í sjónvarpinu. En kynnirinn er alveg ekki að gera sig. Ótrúlega sæt og skemmtileg stelpa og alveg hress líka, en sem kynnir í svona sjónvarpsþætti er hún ekki að gera sig fyrir minn smekk. Hún þyrfti að vera miklu hressari og ekki alltaf með sömu spurningarnar þegar fólkið dettur út úr áheyrnarherbergjunum. En henni á eflaust eftir að fara fram :)

Snarbrjálað veður á föstudagskvöldið - hvað er þá betra en að sitja í góðra vina/fjölskylduhópi í grillpartýi :) Algjör snilld að geta grillað þó það kyngi niður snjó og trampólín fjúki út um allt.

Hvað er samt málið með að “allt” verði að gerast fyrir jólin. Fyrir utan allar fáránlegu auglýsingarnar (”Hentu gamla bílnum fyrir jólin og fáðu 15þúsund krónur fyrir” ég heyrði þessa auglýsingu í alvörunni á föstudaginn) um að kaupa og gera fyrir jólin, heldur þurfa allir hittingar og samverustundir “endilega” að gerast fyrir jól. Það er eins og fólk þurfi að uppfylla einhvern ákveðinn kvóta af samverustundum með hverjum og einum á hverju ári og átti sig á því um miðjan des að kvótinn er síður en svo uppfylltur. Ekki misskilja mig, ég elska að hitta vini og fjölskyldu og allt það, en sumir sem ég þekki eru bókstaflega að kafna í hittingum á hverju kvöldi. Af hverju ekki frekar að dreifa þessu aðeins - nýta tímann í janúar og febrúar þegar “allt ” er yfirstaðið og hversdagsleikinn tekur völdin? Nei bara smá pæling ;)

13 dagar til jóla :)

Helgarfrí

Föstudagur, 8. desember 2006

Eftir 20 mín er ég komin í helgarfrí. Fæ að sleppa klukkan eitt þennan föstudaginn, baaara affí að ég er búin að vera svo dugleg :)

Styttist í jólin, spurning um að setjast í smá jólakortaskrif um helgina, svona þar sem flest annað er búið á okkar heimili. 16 dagar í rjúpuna og meðð´í mmmm get ekki beeeðið :)

En talandi um jólamat. Nú hef ég verið að rekast á orðið “jólahlabbi” á nokkrum bloggsíðum. Þessi stytting fær mig síst til að rjúka til og skella hangikjöti í pott og slefa yfir purusteik. Finnst þetta alveg ógeðslega ógirnileg stytting á orðinu jólahlaðborð…

Familípartý annað kvöld í Kópavoginum, stuð og stemning :) Góða helgi :)

Rúdólf hvað?

Mánudagur, 4. desember 2006

Jáh,  ég þurfti sko ekkert Rautt nef til að fitta inn í hópinn þarna á föstudagskvöldið. Er búin að vera að kafna úr kvefi síðan á fimmtudagskvöld. Harkaði nú samt af mér og sat til miðnættis í vinnunni og hjálpaði til við að safna heimsforeldrum. Þvílíkur árangur sem náðist :)

Búið var að plana laugardagsinn í laufabrauðssteikingu og útskurð. Ég mætti alveg á svæðið, en yfirgaf partýið eftir sirka hálftíma. Það fór meiri tími í að snýta mér og þurrka tárin en að skera út. En það aftraði mér nú ekki frá því að draga Finn í smá búðarleiðangur í gær (hefði betur sleppt því, kvefsins vegna) og versla jólaljós. Hér er því allt orðið skreytt hátt og lágt. Á svo ægilega framtakssaman mann sem dreif sig út á svalir með grenið og seríuna og festi þetta á svona meðan kvöldmaturinn mallaði í pottunum :) Við versluðum líka eins og eitt stykki jólatré - víííí, alveg að koma jóóóóól :)

Mætti alveg galvösk í vinnuna í morgun, farin að geta andað með nefinu aftur og svona… Gafst upp eftir tvo tíma, enda búin að snýta mér of mikið fyrir smekk samstarfskvenna minna og hætt að geta andað með nefinu… Ógeðis kvef :( 

Og VÁ hvað Brooklyn Fæv jólaplatan er jóló og kósý :)