Rúdolf með Rauða nefið :)
Á morgun er dagur rauða nefsins. Ég er búin að kaupa rautt nef. Fyrir þá sem ekki vita er þetta til styrktar Unicef. Á morgun ætla ég að vera í vinnunni frá 9-23:30 en samt bara á launum til kl 17:00. Frá 19:30-23:30 ætla ég að sitja og svara í símann fyrir Unicef söfunina sem verður á Stöð 2 annað kvöld. Ég hef ekkert betra að gera og breytist yfirleitt í kærleiksbjörn svona þegar líður að jólum. Við skötuhjúin komum sem sagt til með að leggja okkar af mörkum í þessa söfnun, vinnuna okkar nebblega
Ég mæli með því að þið öll hringið inn og gerist heimsforeldrar. Ég er búin að vera heimsforeldri í rúmt ár og finn bara ekkert fyrir þessum 1000krónum sem ég borga mánaðarlega. Sennilega eini reikningurinn sem ég borga með alvöru kolgeit-bros á vör ![]()
Laugardagurinn fer svo í laufabrauðsútskurð- og steikingu og eitt jólaljós er komið í gluggann á Laufrimanum. Fleiri verða sett upp um helgina, á eftir að kaupa tvær jólagjafir og ætla svo að dunda mér í desember við föndur og spilamennsku. Frábært að hafa kynnst svona miklum “spilafíklum” sem víla það ekki fyrir sér að rúnta í Grafarvoginn og spila eins og enginn sé morgundagurinn ![]()
Bottom Line: Morgundagurinn - Þú - Heimsforeldri
já ég er nú þegar orðin heimsforeldri(á sama tíma og þú) og segi eins og þú að ég finn ekki fyrir þessum blessaða 1000 kjelli en á meðan geta börn í afríku fengið sómasamlega skólagöngu einungis vegna þessa þússssundskjalls..
En mér þykir þú merkilega góð manneskja að vinna þessa sjálfboðavinnu í þágu unicef. áfram þú!
Alveg merkilega góð já… ég kem sífellt á óvart
Ég líka búin að vera heimsforledri meira en ár…og líður alltaf jafnvel að sjá þennan pening hverfa af reikningnum mínum
Hvað eruð þið alltaf að spila svona skemmtiegt??
hehe - ég bara var að fatta að þú værir búin að skipta um síðu - þegar ég ýtti á þetta “hér” var alltaf að bíða eftir fleiri færslum hehehee - svona er maður úti á túni þessa dagana. Til hamingju með nýju síðuna - flott
Bestu kveðjur á hamingjuheimilið -
Kitta á leið til Kína
Karen: Við erum að spila Trivial, Hættuspilið, Scrabble, Cluedo, Partý og Co og bara alls konar
Kitta: takk, já hugurinn er eflaust á fullu hjá ykkur þessa dagana
Hlakka til að fylgjast með ykkur þegar þið komið frá Kína