Erum við ekkert að djóka…

… með þennan  ógeðis kulda sem er úti. Ég er nú með nokkuð þykkan rass en hélt að hann frysi af mér á leiðinni í vinnuna - og jú, ég var í bíl.

Það er eins gott að það verði ekki svona sjúklega kalt á laugardaginn þegar við mútta tútta ætlum að fara í jólaleiðangur :) Mitt plan er að kaupa allar jólagjafirnar um helgina, eitthvað af skrauti og vera svo reddí með jólasveinahúfuna og hreindýrshornin þegar mér verður gefið grænt ljós á að mega drita þessu dóti niður um íbúðina… hvenær sem það nú verður.

Annars er bara stuð og stemning og almenn yfirvinna sem einkennir nóvembermánuð - góð helgi framundan og ekki yfir neinu að kvarta :)

3 færslur hjá “Erum við ekkert að djóka…”

  1. Jóna Benný skrifaði 15. nóvember 2006 klukkan 14:23 :

    Ég er á leið suður á bóginn um helgina. Það er samt alveg ljóst að ég næ ekki að vera nógu lengi til að fá að njóta gestrisni þinnar og ekki er einu sinni víst að ég komist alla leið í Reykjavíkina því tuðruspark helgarinnar verður á sunnudagseftirmiðdegi í Mosó. En ég sé að þú átt góða helgi framundan, mín verður ekki jafn góð og þín, það skulum við hafa alveg á hreinu :S

  2. Lovísa skrifaði 15. nóvember 2006 klukkan 14:56 :

    Æji.. hin rómaða gestrisni (*hóst* uppblásin vindsæng á gólfinu, rússaljós og gardínulaust herbergi) í Laufrimanum bíður þá bara næstu ferðar…

    Við erum svo væntanleg í höfuðstað norðursins 1. des ;)

  3. Anna Rut skrifaði 17. nóvember 2006 klukkan 22:21 :

    Talandi um kulda þá er mín stödd á Akureyri þessa stundina og var að koma inn úr 15 stiga frosti!!! Brrrrrr!!! Held í alvöru að tærnar séu við það að detta af!!!

    En góða helgi gellsí… ;)

Láttu þitt eftir liggja!

Reitir merktir * verða að vera fylltir út

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-Spam Image