Sjitt hvað tíminn líður ótrúlega hratt… Það er bara allt í einu komin helgi aftur og rolludisasterið að verða vikugamalt. Jahérna hér.

Mér sýnist á öllu að þessi helgi verð jafn róleg og notaleg og síðasta helgi - er í mesta lagi að nenna spilamaraþoni með góðum hópi fólks. Fínt að taka sér almennilega djammpásu fram að jólahlaðborðinu. Jebb jebb, jólunum verður startað 25. nóv með jólahlaðborði Vodafone í Skíðaskálanum í Hveradölum - læt ekki svona gúmmelaði og skemmtilegheit framhjá mér fara :) Skemmti mér allavega ótrúlega vel í fyrra hehe :)

Get svo ekki sleppt því að óska “litla” prinsinum til hamingju með 18 ára afmælið á morgun. Risaknús og ammæliskossar til þín Eyþór minn, njóttu morgundagsins :)

Þið hin - góða helgi!

4 færslur hjá “”

  1. Jóna Benný skrifaði 9. nóvember 2006 klukkan 22:39 :

    Mig langar til að spila við einhvern :(

  2. Lovísa skrifaði 10. nóvember 2006 klukkan 09:05 :

    úff… koddu þá til Reykjavíkur - hér eru massív spilamaraþon að minnstakosti þrisvar í mánuði :)

  3. karen skrifaði 13. nóvember 2006 klukkan 14:20 :

    bíddu bíddu bíddu…ég kann að spila :)

  4. Birna Rún skrifaði 14. nóvember 2006 klukkan 09:15 :

    Mig langar í meira blogg! Bara svona að frekjast aðeins

Láttu þitt eftir liggja!

Reitir merktir * verða að vera fylltir út

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-Spam Image