Meeeee
Hér með er það skjalfest!
Ég er skelfilegur kokkur þegar kemur að “aðalrétti”. Ég er ferlega klár að gera meðlæti (enda þarf ekkert annað en að opna krukku af fetaosti, opna salatpoka, opna baunadós og annað eins einfalt) og því sitjum við skötuhjúin hér, með eldhúsborð sem er kjaftfullt af meðlæti en enginn aðalréttur. Helv.. rollan búin að malla í góðar 50 mínútur í eigin subbi og safa í ofninum, alveg eins og stóð á plastinu sem ég skar utan af henni áðan, en er greinilega ekki sátt við að vera tekin úr 180°C og færð yfir á eldhúsborð í á að giska 23°C. Henni var því í ofboði hent aftur í ofninn, enda svo illa elduð að hún jarmaði þegar Finnur stakk hnífnum í hana. Mikið hlakka ég til að borða kalt kartöflugratín og kalda sósu með sjóðandi heitri helv… rollunni þegar henni loksins hugnast að verða tilbúin!
Hvenær lokar á Dómínós?
Hahahohoho… Við vorum einmitt að borða rollu sem búið var að stinga Mexíkóosti og einhverju góðgæti í. Það heppnaðist alveg ljómandi vel. Enda sá ég um kartöflurnar og gulu baunirnar
hehehehe þú ert snilli
Hahahaha… Helgi minn sannaði það einmitt fyrir mér um daginn að hann er snillingur í að elda roll
Ég skal alveg lána þér hann hvenær sem er til að taka þig í kennsl
Hann er alveg búin að gefast upp á kenna mér eikkað í eldhúsinu…hehehhe:p
Og til hamingju með nýju síðuna skvísí, ekkert smá flot
Jóna: Kartöflurnar, gulu baunirnar, sósan, salatið og sultan var allt ægilega gott…
Er ágæt í annarri eldamennsku svo sem. Og takk
Heiðdís: Ohh já ég veit
Anna Rut: Ætla aldrei aftur að elda rollu
Sko, ég er hræðileg í þessari rollueldamennsku líka. Elda bara kjúlla og málið dautt!! Takk annars fyrir súkkulaðikökuna!
Hehe já ég skil þig, en ef ég hefði þurft að sjá um rolluna líka hefði það líklega farið á sama veg og hjá þér