TGIF
Almáttugur hvað ég er fegin því að það sé föstudagur í dag. Helgin algjörlega óplönuð fyrir utan smávegis matarboð í kvöld. Annars hugsa ég að það verði bara tærnar uppí loft og almenn afslöppun alla helgina, ljúfa líf ![]()
Ég er í ólöglega miklu jólaskapi og var næstum vísað á dyr heima hjá mér í gær þegar ég hoppaði og skoppaði yfir Rúmfatalagersbæklingnum og öllu jóladótinu sem hann bauð uppá. Jólaföndrið er búið að vera í stofunni síðan í ágúst og á ég nú “bara” eftir að koma draslinu saman og þá er málið dautt… Algjörlega kominn tími til
Það er spurning um að taka smá Ikea rúnt um helgina og stoppa lengi í jólaskrautsdeildinni þeirra
Mér til varnar (veit að það eru nokkrir Scrooch-ar sem lenda hingað inn) segi ég bara að það eru þrjár vikur í að það sé orðið “löglegt” að skreyta…
Ætlaði annars bara að óska ykkur góðrar helgar, og benda á að skjaldbakan mín er komin með nafn, Sleepy Gonþaleþ. Birna co-worker fékk þessa fínu hugmynd og hlýtur hún að launum tappa af Peffsí Max flösku og post-it miða.
Gaaad, ég ætla að vippa af tveimur prófum áður en ég tek fram jólahanskana. Þú heppin að þurfa ekki að hugsa um skólaógeð…
Ég þakka verðlaunin, bíð spennt eftir því að sjá hvort þetta sé stór post it miði eða lítill.
Annars er ég óvenjulítill Scrooch í ár, kannski því ég þarf ekki að hafa áhyggjur af neinum jólaprófum
ójá Jóna, ég græt það ekki að þurfa ekki að hugsa um próf og annað skólaóge
Birna… hva! heldurðu að ég sé einhver nískupúki? Þetta er að sjálfsögðu stór post it miði…
Google is the best search engine Google