Súrt síðan í nóvember, 2006

Rúdolf með Rauða nefið :)

Fimmtudagur, 30. nóvember 2006

Á morgun er dagur rauða nefsins. Ég er búin að kaupa rautt nef. Fyrir þá sem ekki vita er þetta til styrktar Unicef. Á morgun ætla ég að vera í vinnunni frá 9-23:30 en samt bara á launum til kl 17:00. Frá 19:30-23:30 ætla ég að sitja og svara í símann fyrir Unicef söfunina sem verður á Stöð 2 annað kvöld. Ég hef ekkert betra að gera og breytist yfirleitt í kærleiksbjörn svona þegar líður að jólum. Við skötuhjúin komum sem sagt til með að leggja okkar af mörkum í þessa söfnun, vinnuna okkar nebblega :) Ég mæli með því að þið öll hringið inn og gerist heimsforeldrar. Ég er búin að vera heimsforeldri í rúmt ár og finn bara ekkert fyrir þessum 1000krónum sem ég borga mánaðarlega. Sennilega eini reikningurinn sem ég borga með alvöru kolgeit-bros á vör :)

Laugardagurinn fer svo í laufabrauðsútskurð- og steikingu og eitt jólaljós er komið í gluggann á Laufrimanum. Fleiri verða sett upp um helgina, á eftir að kaupa tvær jólagjafir og ætla svo að dunda mér í desember við föndur og spilamennsku. Frábært að hafa kynnst svona miklum “spilafíklum” sem víla það ekki fyrir sér að rúnta í Grafarvoginn og spila eins og enginn sé morgundagurinn :)

Bottom Line: Morgundagurinn - Þú - Heimsforeldri :)

Æjh

Fimmtudagur, 23. nóvember 2006

…hvað ég er fegin að helgin komi á morgun. Nenni ekki meiri svona viku…

Hlakka mikið til að fara á jólahlaðborðið í Skíðaskálanum í Hveradölum á laugardagskvöldið. Mmmmmm góður matur, góður félagsskapur :) Klikkar aldrei!

Og já, nýi óóóóótlega fallegi bíllinn okkar kann alveg að keyra í snjó og hálku, hann þurfti bara fyrst að fá sér nýja skó ;)

Allt á kafi

Sunnudagur, 19. nóvember 2006

Ég skreið á lappir fyrir sirka klukkutíma og á þeim tíma hef ég séð fjóra bíla festa sig á bílastæðinu hér í Laufrimanum. Það eru þrír tímar í að við eigum að vera mætt í afmælispartý hjá honum Arnari Geir og ég hlakka mikið til að sjá hvort nýi, óóóóótlega fallegi bíllinn okkar kunni að keyra í snjó ;) Jújú, meðan ég spókaði mig í hinum ýmsu verslunum borgarinnar með múttu, brunaði Finnur á Selfoss á Toyotunni okkar og kom til baka á fjögurra ára gömlum, vínrauðuum, óóótlega fallegum Galant :)

galant

Ég væri reyndar alveg til í að skreppa bara út í göngutúr í svona veðri og færð, dúða mig í vetrardressið og kíkja út í snjókast ;)

Erum við ekkert að djóka…

Miðvikudagur, 15. nóvember 2006

… með þennan  ógeðis kulda sem er úti. Ég er nú með nokkuð þykkan rass en hélt að hann frysi af mér á leiðinni í vinnuna - og jú, ég var í bíl.

Það er eins gott að það verði ekki svona sjúklega kalt á laugardaginn þegar við mútta tútta ætlum að fara í jólaleiðangur :) Mitt plan er að kaupa allar jólagjafirnar um helgina, eitthvað af skrauti og vera svo reddí með jólasveinahúfuna og hreindýrshornin þegar mér verður gefið grænt ljós á að mega drita þessu dóti niður um íbúðina… hvenær sem það nú verður.

Annars er bara stuð og stemning og almenn yfirvinna sem einkennir nóvembermánuð - góð helgi framundan og ekki yfir neinu að kvarta :)

Fimmtudagur, 9. nóvember 2006

Sjitt hvað tíminn líður ótrúlega hratt… Það er bara allt í einu komin helgi aftur og rolludisasterið að verða vikugamalt. Jahérna hér.

Mér sýnist á öllu að þessi helgi verð jafn róleg og notaleg og síðasta helgi - er í mesta lagi að nenna spilamaraþoni með góðum hópi fólks. Fínt að taka sér almennilega djammpásu fram að jólahlaðborðinu. Jebb jebb, jólunum verður startað 25. nóv með jólahlaðborði Vodafone í Skíðaskálanum í Hveradölum - læt ekki svona gúmmelaði og skemmtilegheit framhjá mér fara :) Skemmti mér allavega ótrúlega vel í fyrra hehe :)

Get svo ekki sleppt því að óska “litla” prinsinum til hamingju með 18 ára afmælið á morgun. Risaknús og ammæliskossar til þín Eyþór minn, njóttu morgundagsins :)

Þið hin - góða helgi!

Meeeee

Sunnudagur, 5. nóvember 2006

Hér með er það skjalfest!

 Ég er skelfilegur kokkur þegar kemur að “aðalrétti”. Ég er ferlega klár að gera meðlæti (enda þarf ekkert annað en að opna krukku af fetaosti, opna salatpoka, opna baunadós og annað eins einfalt) og því sitjum við skötuhjúin hér, með eldhúsborð sem er kjaftfullt af meðlæti en enginn aðalréttur. Helv.. rollan búin að malla í góðar 50 mínútur í eigin subbi og safa í ofninum, alveg eins og stóð á plastinu sem ég skar utan af henni áðan, en er greinilega ekki sátt við að vera tekin úr 180°C og færð yfir á eldhúsborð í á að giska 23°C. Henni var því í ofboði hent aftur í ofninn, enda svo illa elduð að hún jarmaði þegar Finnur stakk hnífnum í hana. Mikið hlakka ég til að borða kalt kartöflugratín og kalda sósu með sjóðandi heitri helv… rollunni þegar henni loksins hugnast að verða tilbúin!

Hvenær lokar á Dómínós?

TGIF

Föstudagur, 3. nóvember 2006

Almáttugur hvað ég er fegin því að það sé föstudagur í dag. Helgin algjörlega óplönuð fyrir utan smávegis matarboð í kvöld. Annars hugsa ég að það verði bara tærnar uppí loft og almenn afslöppun alla helgina, ljúfa líf :)

Ég er í ólöglega miklu jólaskapi og var næstum vísað á dyr heima hjá mér í gær þegar ég hoppaði og skoppaði yfir Rúmfatalagersbæklingnum og öllu jóladótinu sem hann bauð uppá. Jólaföndrið er búið að vera í stofunni síðan í ágúst og á ég nú “bara” eftir að koma draslinu saman og þá er málið dautt… Algjörlega kominn tími til ;) Það er spurning um að taka smá Ikea rúnt um helgina og stoppa lengi í jólaskrautsdeildinni þeirra ;) Mér til varnar (veit að það eru nokkrir Scrooch-ar sem lenda hingað inn) segi ég bara að það eru þrjár vikur í að það sé orðið “löglegt” að skreyta…

Ætlaði annars bara að óska ykkur góðrar helgar, og benda á að skjaldbakan mín er komin með nafn, Sleepy Gonþaleþ. Birna co-worker fékk þessa fínu hugmynd og hlýtur hún að launum tappa af Peffsí Max flösku og post-it miða.