Hitt og þetta

Ohhh mér finnst svo gaman að eiga svona bleika og fallega síðu, en sakna samt ennþá nafnsins á svínið mitt (og hin dýrin líka ef út í það er farið).

 Á laugardaginn var konu- og karlakvöld Vodafone og var þvílíkt stuð. Við stelpurnar hittumst á Kaffi Reykjavík þar sem snittur og vín var í boði, ásamt happdrætti og hjálpartækjakynningu. Strákarnir komu síðan til okkar af karlakvöldinu, þar sem Finnur komst að því að það er óskemmtilegt hlutverk að vera keila. Saman var svo farið á Nasa þar sem Skítamórall hélt uppi stuðinu.

Eftir ansi mikinn letisunnudag rifum við okkur upp og brunuðum í Hafnarfjörðinn í smá krúttbossaklípingu. Davíð Carl lék að sjálfsögðu á als oddi og kyssti kaffikönnuna í gríð og erg - svona skínandi fín kaffikanna þar sem hann sá spegilmynd sína og smellti ákaft kossi á sjálfan sig í “speglinum”.

Í gærkvöldi bauð Vodafone starfsfólkinu á Mýrina. Ég verð nú bara að segja það að mér fannst myndin ótrúlega góð og alls ekki svona týpískt íslensk. Mæli allavega hundraðprósent með henni :)

Framundan er svo bara vinna og vinna og smá afslöppun meðfram því :)

7 færslur hjá “Hitt og þetta”

  1. Finnur skrifaði 31. október 2006 klukkan 22:35 :

    Ég er ennþá að drepast í hælnum mínum :)

  2. Svana skrifaði 1. nóvember 2006 klukkan 12:19 :

    Geggja ;) þér leist semsagt ekkert á Gissur gríslingur hummmm, en hvað með Skjöldur skjaldbaka á náttúrulega skjaldbökuna hehehe. Aumingja Finnur!!!

  3. Lovísa skrifaði 1. nóvember 2006 klukkan 12:38 :

    Skjaldbakan er komin með nafn - Sleepy Gonzale ;)

  4. Svana skrifaði 2. nóvember 2006 klukkan 09:43 :

    hahaha geggjað naf ;)

  5. Svana skrifaði 2. nóvember 2006 klukkan 09:43 :

    :D

  6. Heiðdís skrifaði 2. nóvember 2006 klukkan 18:14 :

    hey flott síða! færri auglýsingar hér… spurning um að fá bara að auglýsa hjá þér á þessari síðu svo hún muni líkjast central.is?

    En verðum svo að fara að hittast.. það er alltaf nóg að gera hjá okkur… panta tíma hjá þér eftir prófin?

  7. Guðrún Arna skrifaði 2. nóvember 2006 klukkan 18:47 :

    Hæ, flott síðan þín. Ég var reyndar ekkert búin að pæla í auglýsingunum á cenrtal.is þar sem ég er en fór að skoða það, soldið af þeim þa ;) Þessar auglýsingar eru ekki að virka á mig. Verð greinilega að fá mér nýja síð ;)

Láttu þitt eftir liggja!

Reitir merktir * verða að vera fylltir út

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-Spam Image