Súrt síðan í október, 2006

Hitt og þetta

Þriðjudagur, 31. október 2006

Ohhh mér finnst svo gaman að eiga svona bleika og fallega síðu, en sakna samt ennþá nafnsins á svínið mitt (og hin dýrin líka ef út í það er farið).

 Á laugardaginn var konu- og karlakvöld Vodafone og var þvílíkt stuð. Við stelpurnar hittumst á Kaffi Reykjavík þar sem snittur og vín var í boði, ásamt happdrætti og hjálpartækjakynningu. Strákarnir komu síðan til okkar af karlakvöldinu, þar sem Finnur komst að því að það er óskemmtilegt hlutverk að vera keila. Saman var svo farið á Nasa þar sem Skítamórall hélt uppi stuðinu.

Eftir ansi mikinn letisunnudag rifum við okkur upp og brunuðum í Hafnarfjörðinn í smá krúttbossaklípingu. Davíð Carl lék að sjálfsögðu á als oddi og kyssti kaffikönnuna í gríð og erg - svona skínandi fín kaffikanna þar sem hann sá spegilmynd sína og smellti ákaft kossi á sjálfan sig í “speglinum”.

Í gærkvöldi bauð Vodafone starfsfólkinu á Mýrina. Ég verð nú bara að segja það að mér fannst myndin ótrúlega góð og alls ekki svona týpískt íslensk. Mæli allavega hundraðprósent með henni :)

Framundan er svo bara vinna og vinna og smá afslöppun meðfram því :)

Nauh, þú hér…

Laugardagur, 28. október 2006

Þurfti ekki annað en að minnast á hvað hin síðan var orðin ógeðslega blá og ljót þegar þessi stórfína síða með óendanlega krúttuðu svíni var komin upp :) Ég á nú besta kærastann í öllum heiminum :) Og ekki nóg með það, ég get víst valið um krúttudýr svona eftir veðri og vindum, tjah eða skapgerð þess tíma ;)

Óska því eftir tillögum að nafni á svínið mitt sæta.

P.s. Nóvember Bambi er ekki möguleiki, það er upptekið ;)